Jónas Tryggvi smiling, with the bay of Siglufjörður in the background

Finnurðu að eitthvað þarf að breytast?

Fá skýrleika í lífi, samböndum og starfi

Finnurðu að eitthvað í lífinu eða starfinu passar ekki lengur?

Kannski veistu hvað það er —
en kannski ekki alveg?

Skoða markþjálfun

Keith's Cacao

100% Ceremonial kakó — eins og það á að vera

Keith’s Cacao er 100% Ceremonial kakó frá Guatemala — hreint, ósykrað og lítið unnið kakó úr Criollo-baunum, unnið með virðingu fyrir upprunanum og náttúrunni.

👉 Afhverju að fara alla leið í 100% ceremonial kakó?

• Mild, stöðug orka án kaffikrassa
• Mörgum finnst það fullkomið fyrir djúpa vinnu
• Notað í hugleiðslu, athöfnum, sköpun og daglegu lífi

🌿 Náttúulega ríkt af:
• magnesíum sem styður orku og dregur úr þreytu
• járni sem styður súrefnisflutning
• kalíum sem styður eðlilegan blóðþrýsting
• kakóflavanólum sem styðja eðlilegt blóðflæði

👉 Viltu fara alla leið með Keith's Cacao?

Panta núna

Veistu ekki hvar þú átt að byrja?

Þú þarft ekki að gera þetta ein(nn)

Sendu mér skilaboð — við skoðum hvað er að gerast og hvort þetta sé rétt næsta skref fyrir þig.

👉 Þetta er fyrir þig ef þú ert tilbúin(n) að horfa heiðarlega á það sem er að gerast.

Senda mér skilaboð
Jónas Tryggvi looking at Lake Atitlán

Ég veit hvernig það er að vilja fá meira út úr lífinu.

Að vera á krossgötum.
Að upplifa sig fastan.
Að ganga í gegnum breytingar.
Að upplifa erfiðleika í sambandi.
Að upplifa sig með brotið hjarta.
Að vera í starfi sem þjónar manni ekki lengur.
Að upplifa að maður tilheyri ekki —
og skilja ekki alltaf eigin tilfinningar.

👉 Þú ert ekki einn.
👉 Þessu er hægt að breyta.

Jónas Tryggvi smiling, with the bay of Siglufjörður in the background

Hver er Jónas Tryggvi?

Ég er ICF-vottaður markþjálfi, jógakennari og tölvunarfræðingur — með bakgrunn úr krefjandi störfum og áratug í fjármála- og tæknigeiranum.

Ég hef líka lokið árs þjálfun í Gestalt sálarmeðferðarfræði og setið námskeið sem snerta samskipti, sambönd, manneskjuna og taugakerfið.

Ég hef sjálfur farið í gegnum tímabil þar sem margt breyttist — sambönd, vinna og stefna í lífinu. Sú reynsla hefur mótað hvernig ég vinn í dag.

Ég vinn með fólki sem vill fá meiri skýrleika, losna úr mynstrum sem halda því föstu og taka næstu skref af meiri meðvitund — í lífi, samböndum og starfi.

Í samtölunum hjá mér mætast skýrleiki, heiðarleiki og dýpt.

Ég veit hvernig það er þegar hlutirnir virðast vera í lagi á yfirborðinu — en eitthvað inni í manni segir að þetta sé ekki alveg það sem á að vera.

Ég veit líka hvernig það er að horfa heiðarlega á stöðuna — og taka ákvarðanir sem eru kannski ekki alltaf auðveldar, en þær sem skipta máli.

👉 Það er sú vinna sem ég vinn með fólki í dag.
👉 Þetta er ekki yfirborðsvinna.
👉 Þetta er vinna fyrir fólk sem er tilbúið að skoða það sem er raunverulega í gangi — og það sem skiptir raunverulega máli.

Sjá hvernig ég vinn með þetta

Ef þetta talar til þín: