Skýrleiki í lífinu, samböndum og starfi | Markþjálfun hjá Betra Box

Finnurðu að eitthvað í lífinu, sambandinu eða starfinu er ekki alveg að virka lengur — eða að eitthvað sé óskýrt?

Eða gengur allt vel — en samt er eitthvað sem vantar?

Bóka tíma hjá mér

Engin kynningarsímtöl — við förum beint í það sem skiptir máli.

Kannski ert þú á stað þar sem næsta skref skiptir máli.

Kannski er kominn tími til að hætta að troða þér í box sem passar ekki lengur.

Kannski þekkirðu þessa tilfinningu:

„Eitthvað þarf að breytast.“

Það er merki um að eitthvað í lífi þínu sé að kalla á meiri skýrleika.

Á eitthvað af þessu við um þig?

Kannski finnur þú þig í einu af þessum — eða fleiri.

Í lífinu almennt

• Þú ert á krossgötum
• Þér finnst þú vera týnd(ur) eða föst/fastur í lífinu
• Þú finnur að eitthvað er ekki að virka
• Þú vilt meiri ró, skýrleika og stefnu
• Þú vilt skilja þig betur
• Þú finnur að lífið hlýtur að hafa meira upp á að bjóða
• Þú vilt líða betur í eigin líkama

Í samböndum

• Þú finnur að eitthvað í sambandinu er ekki að virka
• Þú vilt hætta að endurtaka sömu mynstrin
• Þú þráir dýpri tengsl — við þig og aðra
• Þú vilt finna leið til að láta sambandið þitt þrífast
• Þú ert að ganga í gegnum sambandsslit
• Þú vilt finna innri röddina þína og standa með henni
• Þú ert í sambandi sem þú ert ekki lengur viss um hvort sé rétt fyrir þig

Ef þú vilt vinna með þetta saman sem par, þá er það einnig í boði. Við vinnum þá með:

• samskipti og skilning
• tengsl og nánd
• kynlíf og vellíðan
• og að taka heiðarlegar ákvarðanir um sambandið

Hvort sem markmiðið er að styrkja sambandið — eða fá skýrleika um næstu skref.

Í starfi eða leiðtogahlutverki

• Þú finnur að starfið passar ekki lengur
• Þú ert í ábyrgðarhlutverki eða undir miklu álagi
• Þú þarft að taka mikilvægar og skýrar ákvarðanir
• Þú ert að leita að stefnu í starfi sem passar betur við hver þú ert
• Þú vilt þróast og vaxa sem leiðtogi
• Þig vantar hugrekkið til að taka stökkið sem þig langar í

Það sem er að gerast í starfinu þínu er oft ekki aðskilið frá því sem er að gerast í lífi þínu.
Við vinnum með þetta í samhengi.

Ef þú kinkar kolli við einhverju af þessu — þá ertu á réttum stað.

Kannski veist þú ekki alveg hvar á að byrja.

Það er í lagi. Við byrjum þar sem þú ert.

Bóka tíma hjá mér

🔵 Hvernig virkar þetta?

Við skoðum það sem raunverulega skiptir máli — ekki bara yfirborðið.

Þetta snýst ekki um að laga þig.
Heldur að sjá skýrar hvað er í gangi — og taka ábyrgð á næstu skrefum.

🧭 Markþjálfunartími

Þú bókar ekki kynningarsímtal.

Þú bókar 1:1 einstaklingstíma þar sem við förum beint í það sem skiptir máli.
(Eða komið sem par ef svo á við)

Lengd: allt að 90 mín.
Format: 1:1 samtal — á stofu eða í gegnum Zoom.

Í þessum tíma:

• fáum við skýrleika á það sem er í gangi
• förum að kjarna þess sem þú ert að upplifa
• skýrum hvað þú þarft raunverulega
• og skilgreinum næstu skref sem þú getur tekið

👉 Eftir þennan tíma verður þú ekki á sama stað.

Þú ferð út með skýrari sýn á aðstæður þínar —
og hvað skiptir mestu máli næst.

Um mig & afhverju að vinna með mér

Jónas Tryggvi smiling, with the bay of Siglufjörður in the background

Ég heiti Jónas Tryggvi Stefánsson.

Ég vinn með einstaklingum og pörum sem vilja skilja sig betur, losna úr mynstrum sem halda þeim föstum og taka næstu skref af meiri meðvitund. Í þessari vinnu mætast skýrleiki, stefna og heiðarleiki.

 


 

Ég er ICF-vottaður ACC markþjálfi og á leið í PCC vottun. Ég hef lokið markþjálfunarnámi hjá Opna Háskólanum í Reykjavík í samstarfi við Coach U og framhaldsnámi hjá PRIME Coaching Academy, og er einnig menntaður stjórnendamarkþjálfi.

Auk þess er ég Yoga Alliance vottaður jógakennari frá Yogavin.

Ég er einnig tölvunarfræðingur með áratugsreynslu úr fjármálageiranum og hef starfað í krefjandi ábyrgðarhlutverkum. Það gerir mér kleift að vinna bæði með það sem er að gerast í lífinu og því sem er að gerast í starfinu.

Samhliða því hef ég farið í gegnum mína eigin vegferð. Ég hef verið í löngum samböndum, farið í gegnum skilnað, upplifað kulnun og breytt um starfsvettvang.

Ég hef einnig lokið árs þjálfun í Gestalt miðaðri sálarmeðferðarfræði og námskeiðum í áfallamiðaðri nálgun. Ég er ekki að bjóða upp á þerapíu, en ég vinn með manneskjuna í heild og það sem raunverulega er að gerast undir yfirborðinu.

Ég vinn með fólki sem vill fara dýpra en yfirborðið — og er tilbúið að mæta sér af heiðarleika.

Markmiðið mitt er að skapa rými þar sem þú getur fengið skýrleika, unnið með það sem skiptir máli og fundið næstu raunverulegu skref.

Hvernig þetta virkar

Við byrjum á einum tíma.

Fyrir suma er það nóg.
Fyrir aðra verður þetta byrjun á dýpri vinnu.

Margt af því sem við vinnum með kallar ekki á skyndilausnir —
heldur dýpri athugun og stuðning yfir tíma.

Við finnum út úr því saman.

Þetta er ekki fyrir alla.
En ef þú ert tilbúin(n) að horfa heiðarlega á það sem er í gangi —
þá getum við komist mjög langt.

💰 Bóka tíma & Verð

1:1 Einstaklingstími í markþjálfun: 32.000 kr
(Eða komið sem par ef svo á við)

Lengd: Allt að 90 mín.

Fyrir suma er einn tími nóg.
Fyrir aðra er þetta byrjun á dýpri vinnu.

Sjáðu umsagnir hér fyrir neðan.

Þú ert ekki að kaupa tíma.

Þú ert að skapa þér rými til að sjá skýrar —
og hreyfa það sem hefur verið fast.

Bóka tíma hjá mér

✨ Hvað breytist þegar fólk vinnur með mér

Markþjálfun er ekki bara samtal.

Það er rými til að sjá skýrar það sem áður var óljóst — 
og taka næstu skref með meiri meðvitund.

Margir sem koma í markþjálfun upplifa til dæmis:

• meiri skýrleika í ákvörðunum
• ró í stað innri ringulreiðar
• betri samskipti og sterkari mörk
• dýpri tengsl í samböndum
• skýrari stefnu í lífi eða starfi
• aukið sjálfstraust í leiðtogahlutverki
• meiri samhljóm milli þess sem þú ert og þess lífs sem þú lifir

Stundum breytist lífið ekki á einni nóttu.

En oft breytist sýn þín —
og þá getur allt breyst.

Bóka tíma hjá mér

Ekki viss hvort þetta sé þess virði?

Sjáðu hvað fólkið á undan þér hefur um þetta að segja: