Námskeið: Áhrifarík samskipti og fagmennska í vinnuumhverfi

Áhrifarík samskipti og fagmennska í vinnuumhverfi – 6 mánaða starfsþróunarnámskeið

Með Jónasi Tryggva Stefánssyni – ACC, ICF vottuðum stjórnendamarkþjálfa frá Opna Háskólanum í Reykjavík og Coach U, jógakennara frá Yogavin og tölvunarfræðingi frá Háskóla Íslands – f.h. Betra Box ehf; námskeið, markþjálfun, fræðsla og ráðgjöf.

Jónas hefur yfir áratugs reynslu af vöruþróun, teymisvinnu og verkefnastýringu innan fjármálageirans og nýtir þá reynslu á markvissan og hagnýtan máta í kennslu og ráðgjöf. Sem markþjálfi og jógakennari hefur Jónas öðlast fjölmörg tól og reynslu sem nýtast í samskiptum, skipulagi, teymisvinnu, verkefnastýringu, viðburðarstjórnun og starfi almennt. Jónas býður upp á persónulega þjónustu.


🔹 Um námskeiðið

Áhrifarík samskipti og fagmennska í vinnuumhverfi er rúmlega 6 mánaða starfsþróunarnámskeið sem er djúpt og persónulegt námskeið sem miðar að því að efla faglega samskiptafærni, skýrleika, skipulag, verkefnastjórnun, traust, mörk og ábyrgð í teymisvinnu, samskiptum innan vinnustaðar og út á við.

Námskeiðið er kjörinn vettvangur fyrir þá sem starfa í einhverjum af eftirfarandi störfum:

- skrifstofu- og sérfræðistörfum.

- þjónustu og samskiptum við viðskiptavini.

- mannaforráði og/eða stjórnunarhlutverkum.

- verkefnastjórn, teymisvinnu og viðburðastjórn.


🔧 Viðfangsefni námskeiðsins

- Nonviolent Communication (NVC): heimsþekkt samskiptatækni sem umbyltir skilvirkum samskiptum.

- Cartman Drama Triangle & Empowerment Dynamic: greining og umbreyting samskiptamynstra.

- Pia Mellody: mörk, meðvirkni og ábyrgð.

- Brené Brown: traust, berskjöldun og áhrifamikil tengsl - skoðum hvernig traust er brotið upp, brotið niður og byggt upp og samband þess í samskiptum.

- Polyvagal kenningin og taugakerfið: áhrif taugakerfisins á líkamann og viðbrögð - meðvitund eykur samskiptavitund og skilvirkni á vinnustöðum

- Félagsfærni í teymis- og þjónustusamskiptum: hlutleysi, lausnamiðuð nálgun

- Skipulag og stýring með skýrum samskiptum: farið er yfir Kanban verkefnastjórnunarverkferlatólið og Trello, notkun þessara tóla og samband þess við skilvirkari og betri samskipti tekin fyrir

- Núvitund: áhrif núvitundar tekin fyrir í sambandi við skilvirkari samskipti

- Endurgjöf og æfingar: æfingar og verkefni úr raunveruleikanum tekin fyrir

 

Listinn er ekki tæmandi og einungis til að gefa grófa hugmynd um viðfangsefni sem þátttakendur mega eiga von á að snerta á námskeiðinu.



🔪 Markmið og námsárangur

Eftir námskeiðið geta þátttakendur:

* Tekist á við krefjandi samskipti á vinnustað af ábyrgð og skýrleika

* Axlað ábyrgð án sjálfsfórnunar og byggt upp áreiðanleika-menningu

* Leitt teymi í gegnum traust, ágreining og áskoranir

* Tjáð sig faglega og lagt skýr mörk 

* Drifið áfram lausnamiðuð samskipti innan vinnustaðar sem og út á við til viðskiptavina

* Eflt sjálfsvitund, tilfinningastjórn og virka hlustun

* Greint og umbreytt úr óæskilegum samskiptamynstrum

* Greint og tekið verkefni áfram í gegnum verkefnastjórnunartól með skilvirkum samskiptum að leiðarljósi


🗓 Kennslufyrirkomulag og dagsetningar

Kennsla fer fram á um það bil 3 vikna fresti á Suðurlandsbraut 32, 108 Reykjavík, á 4. hæð, í húsnæði Betra Box ehf., kl. 17:00–19:00.

Næsta námskeið hefst 22. júlí, 2025 og lýkur 17. desember, 2025.

Tími Dagsetning
1 22. júlí 2025
2 13. ágúst 2025
3 3. september 2025
4 24. september 2025
5 15. október 2025
6 5. nóvember 2025
7 26. nóvember 2025
8 17. desember 2025


Þátttakendur fá persónulega kennslu, utanumhald og eftirfylgni. Kennsla fer fram í formi fyrirlestra og æfinga. Þátttakendur fá þar að auki góðan tíma milli tíma til þess að rifja upp og æfa sig að nota námsefnið.

* Bónus: þátttakendur hefur beinan aðgang að kennara á meðan á námskeiði stendur í gegnum tölvupóst til að spyrja spurninga sem tengist efni námskeiðsins. 

🎓 Upplýsingar og skilmálar

* Lengd: ~6 mánuðir / 8 skipti / samtals 16 klst

* Kennari: Jónas Tryggvi Stefánsson ACC / ICF vottaður markþjálfi, tölvunarfræðingur og jógakennari

* Skipuleggjandi: Betra Box ehf., kennitala 5809180260.

* Staðsetning: Suðurlandsbraut 32, 108 Reykjavík.

* Verð: 315.000 ISK (254.032 ISK + VSK)


Skráning fer fram hér: Hafa samband – Betra Box